Skip to product information
1 of 2

20% Premium CBD Þykkni frá Le Pharm

Verð 9.990 kr
Verð 0 kr Útsöluverð 9.990 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.

Le Pharm Premium CBD þykkni

Stærð: 5ml

Magn CBD: 20% (1000mg)

Heilvirkt CBD (full spectrum)

Ráðlögð notkun: Einn snúningur 2-3 sinnum á dag

Grunnefnið í Le Pharm CBD, heilvirka (full spectrum) þykkninu, er sótt með koldíoxíð pressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum nokkurs konar „hópefli“ (e.entourage effect) sem hámarkar virknina sem ná má úr plöntunni.

CBD þykknið er fáanlegt í 5 ml. sprautu og í nokkrum mismunandi styrkleikum. þykknið er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%.

Þykknið inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessu þykkni, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).

Verkferlar og geymsla.

CBD innihaldsefnið í Le Pharm þykkninu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að öll önnur innihaldsefni séu lífræn og unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practices). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíð pressun án nokkurra aukaefna. Aðferðin er sú náttúrulegasta sem völ er á í CBD vinnslu. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals.

Þykknið skal nota innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma þykknið á köldum dimmum stað. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Framleiðandinn.

Framleiðandi Le Pharm þykknisins er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampvörur í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

www.pharma-hemp.com

Innihaldsefni:

OLEA EUROPAEA FRUIT OIL, CANNABIS SATIVA BIOMASS EXTRACT, MIXED TERPENES (LIMONENE, LINALOOL), CERA ALBA

Ábending:

Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota þykknið. Ef upp koma óþægindi í húð eða þykknið berst í augu skal skola með vatni.

Afhendingartími

1-3 virkir dagar