Skilmálar

  1. Skilgreining:
  • Seljandi er Ozon ehf. (Hemp Living), kennitala: 550385-0159, Virðisaukanúmer: 129996
  • Heimilisfang: Súlunes 20
  • Símanúmer: 8989097
  • Netfang: ozoniceland@gmail.com
  • Ozon ehf. (Hempliving.is) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
  1. Afhending vöru
    • Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun.
    • Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
    • Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
    • Eðlilegur afhendingatími vöru eru 1-7 virkir dagar frá því að pöntun hefur verið staðfest og er það mismunandi eftir vöru. Undantekningar á þessu eru forpantanir en þá er afhendingartími sérstaklega tiltekin.
    • Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Ozon ehf. (hempliving.is) ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Ozon ehf. (hempliving.is) til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
    • Sendingagjald fer eftir verðskrá Íslandspósts hverju sinni
    • Hægt er að sækja vöru í verslun okkar í Urriðaholtsstræti 24 Garðabæ milli kl 11-16 alla virka daga

 

  1. Pöntun
    • Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun.
    • Kaupandi fær senda staðfestingu á kaupum þegar pöntun er skráð. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
    • Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
    • Sé vara ekki sótt innan 14 daga þá áskilur Ozon ehf sér rétt til að selja öðrum vöruna og stendur þá kaupanda til boða að bíða eftir næstu sendingu eða fá endurgreitt.
  2. Verð á vöru og sendingarkostnaður
    • Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti á næsta pósthús eða í heimahús og förum eftir verðskrá Íslandspóst hverju sinni
  3. . Upplýsingar
    • Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni.
    • Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
  4. Verð
    • Hempliving.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og undangenginnar tilkynningar.
    • Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir hempliving.is  og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa
    • Verðhækkanir sem og verðlækkanir er eiga sér stað eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu.
    • Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega.
    • Öll verð eru gefin upp í Íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.
  5. Gölluð vara
    • Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
  6. Að skipta og skila vöru
    • Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

 

  1. Greiðsla
    • Við tökum á móti: VISA og Mastercard
    • Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu.
    • Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðsla er innt af hendi.
    • Ef að sölu hefur orðið og vara ekki fáanleg, er kaupanda boðið uppá endurgreiðslu, aðra sambærilega vöru eða að bíða eftir að vara verði fáanleg.
  2. Póstsendingar Innanlands
    • Allar vörur sem eru sendar fara með Íslandspósti í ábyrgðarpósti.
    • Um leið og sending er farin frá seljanda er hún á ábyrgð kaupanda.
    • Seljandi og kaupandi geta samið sérstaklega um tryggingu á sendingu og þarf kaupandi sérstaklega að biðja um það hjá ozoniceland@gmail.com
  3. Póstsendingar til annara landa
    • Ekki er hægt að panta og fá sent til úr fyrir Íslands en við bendum á www.hemplving.eu fyrir sendingar innan Evrópu
  4. Yfirferð á vörum
    • Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga.
    • Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.
  5. Réttur við galla 
    • Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð eða nýja vöru.
    • Tilkynning á galla verður að berast skriflega til ozoniceland@gmail.com. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. 
    • Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
  6. Ábyrgð
    • Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup.
    • Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu, nema að annað sé tekið fram.
    • Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu eða umbúðum vöru sé framvísað. 
    • Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits.
    • Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnað eða átt hefur verið við hana án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili.
    • Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.
    • Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði eftir 2 ára ábyrgðartíma.
    • Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.
  7. Persónuvernd
    • Hempliving.is fer með persónuupplýsingar í samræmi við nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
      • Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni www.hempliving.is  og hefur enginn nema eigendur vefsins og umsjónarmenn hans aðgang að þeim. Í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhendar þriðja aðila. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur www.hempliving.is  samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins.
      • Hempliving.is mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma neinar kreditkorta upplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inná örugga greiðslusíðu Korta og gengur frá greiðslu fyrir kaupum þar.
      • Aðgangur þinn og notkun á www.hempliving.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tikynningu um lagaleg atriði.  Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála, skaltu ekki nota þessa síðu.  Þessir skilmálar geta breyst frá einum tíma til annars án fyrirvara.
  1. Úrlausn vafamála
    • Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt.
    • Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Neytendasamtökin.
    • Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
  2. Þjónusta og upplýsingar
    • Ef þú hefur spurningar um innihald eða efni heimasíðunnar er þér velkomið að hafa samband  við okkur ozoniceland@gmail.com. Við munum svara öllum þínum fyrirspurnum með ánægju innan 2 virkra daga
  3. Trúnaður (Öryggisskilmálar)
    • Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
  4. Lög og varnarþing
    • Skilmálar okkar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmálanna skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.