Skip to product information
1 of 2

3% Full Spectrum CBD húðolía frá Pharmahemp - 50% Útsala vegna dagsetningar

Verð 1.995 kr
Verð 3.990 kr Útsöluverð 1.995 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.

Stærð : 10ml

Magn CBD : 300mg

PharmaHemp CBD húðolía m/ Hampfræolíu
Heilvirkt CBD (Full Spectrum)
Ráðlögð notkun: Tveir-Fjórir dropar á húð 1-2svar á dag.

Grunnefnið í PharmaHemp CBD, heilvirkri (full spectrum) húðolíu, er sótt með því að nýta koldíoxíðpressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum og fleiri lífvirkum efnasamböndum ásamt ólífuolíunni sem notast er við til íblöndunar myndast nokkurskonar „hópefli“ (e.entourage effect) sem hámarkar virknina sem ná má úr plöntunni.

CBD olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu) og fjórum mismunandi CBD styrkleikum. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.05%.

Hún inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessari olíu, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).

Verkferlar og geymsla.

CBD innihaldsefnið í PharmaHemp olíunni er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að öll önnur innihaldsefni séu lífræn og unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíðpressun án nokkurra aukefna. Aðferðin er sú náttúrulegasta sem völ er á í CBD vinnslu. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals.

Hrista skal olíuna vel fyrir notkun og nota hana innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma olíuna upprétta utan mikillar birtu og hita. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Framleiðandinn.

Framleiðandi PharmaHemp olíunnar er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

www.pharma-hemp.com

Innihaldsefni:

Cannabis Sativa Seed Oil, Cannabis Sativa L. Extract

Ábending:

Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota olíuna. Ef upp koma óþægindi í húð eða olían berst í augu skal skola með vatni.

 

Afhendingartími

1-3 virkir dagar