Dr. Kent CBD Glúkósamín kæli/hita- og verkjakrem
Couldn't load pickup availability
Stærð : 100ml
Magn CBD : 1100 mg
Ráðlögð notkun : Þunnt lag 1-2svar á dag á valin svæði, nuddist vel inn í húðina.
Heilvirkt CBD (full spectrum)
Á meðal annarra virkra efna í Dr. Kent kreminu eru m.a. mentól, kamfóra, metýl salicisýlat, negulnaglailmkjarnaolía, útdráttur úr sterkum pipar, natríum kondróatín súlfat, MSM (lífrænn brennisteinn), sterínsýra o.fl. Allt eru þetta náttúruleg efni og vandlega ígrunduð samsetning þeirra í Dr. Kent kreminu hefur fagnað miklum vinsældum víða um heim.
Ábending :
Þeim sem taka blóðþynningarlyf er ráðlagt frá því að nota Dr. Kent kremið og ágæt varúðarregla er að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk ef reglubundin notkun þess til langs tíma er fyrirhuguð. Forðist að kremið komist í snertingu við slímhúð, augu, viðkvæm svæði eða skemmda húð. Gott er að þvo sér vel um hendur eftir að kremið er borið á. Ekki er ráðlegt að nota kremið á börn undir tólf ára aldri.
Verkferlar og geymsla.
CBD innihaldsefnið í Dr. Kent kreminu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að önnur innihaldsefni séu séu unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með súrefnispressun eingöngu án nokkurra aukefna. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals. Kremið er fáanlegt í 100 ml. áltúpum og best er að geyma það utan mikillar birtu og hita.
Geymist þar sem börn ná ekki til.
Framleiðandinn.
Framleiðandi Dr. Kent kremsins er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.
Innihaldsefni :
Aqua, Stearic Acid, Coco-Caprylate/Caprate, Persea Gratissima Oil, Dimethyl Sulfone, Cannabis Sativa Biomass Extract, Caprylic/Capric Triglyceride, Cetearyl Alcohol, Glyceryl Stearate, Squalane, Menthol, Camphor, Methyl Salicylate, Sodium Chondroitin Sulfate, Glucosamine Sulfate, Sorbitan Caprylate, Propanediol, Benzoic Acid, Eugenia Caryophyllus Flower Oil, Sodium Cetearyl Sulfate, Capsicum Frutescens Fruit Extract, Rosmarinus Officinalis Extract, Brassica Campestris Seed Oil, Eugenol, lsoeugenol.
Meira um CBD
Meira um CBD
CBD hefur verið mikið í umræðu og fréttum víða um heim að undanförnu vegna fjölbreyttra áhrifa sinna til bættrar heilsu. Víðfeðmar undirbúningsrannsóknir gefa sterkar vísbendingar um ýmis jákvæð áhrif af tengingum CBD (cannabinoid) við endókannabínóðakerfið (endocannabinoid system (ECS)) sem verið hefur til staðar í lífríkinu og manninum frá örófi alda. CBD er á meðal innihaldsefna í lyfseðilsskyldum taugalyfjum og í vísindasamfélaginu er almenn viðurkenning á jákvæðum áhrifum CBD á taugakerfið, t.d. kvíða, streitu og svefn ásamt því að virkni á t.d. bólgur og verki er jafnframt þekkt. Unnið er m.a. að fjölmörgum rannsóknum á áhrifum CBD, m.a. á ónæmis- og stoðkerfið. Langt er í frá að allar CBD vörur séu svipaðar. Þar getur m.a. munað um ólíkar ræktunar- og vinnsluaðferðir og sömuleiðis eru alltof mörg dæmi um að raunverulegt magn af CBD sé minna en upp er gefið. Þess vegna þarf að velja framleiðendur af kostgæfni.
Afhendingartími
Afhendingartími
1-3 virkir dagar
