Skip to product information
1 of 4

15% einangruð CBD Olía frá Endoca (Myntu og Súkkulaði lykt)

Verð 12.900 kr
Verð 19.900 kr Útsöluverð 12.900 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.

Stærð : 10ml

Magn CBD : 1500mg


Endoca CBD súkkulaði myntu hampolían er náttúrulega einangruð (isolated).  Olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu). Í hverri flösku eru um 300 dropar og eru því um 5mg af CBD í hverjum dropa. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er 0%. Endoca hampolían inniheldur engin gerviefni. Í henni, eins og í ýmsum öðrum góðum CBD vörum, eru einungis efni sem óhætt er að borða (e. eatable). Öll innihaldsefni eru náttúruleg og lífræn og allt vinnsluferli Endoca er sömuleiðis án hvers kyns tilbúinna eða ólífrænna efna.

 

Ráðlögð notkun.

Endoca ráðleggur viðskiptavinum sínum að byrja í litlum skömmtum fyrstu dagana en fikra sig síðan áfram þar til tilætluðum áhrifum er náð. Ekki er óalgengt að fólk noti 15-30 mg. á dag fyrir almenna betri líðan en mun meira, t.d. 50-70 mg. daglega í sérstökum viðfangsefnum. Sumir ganga mun lengra og almenna reglan er sú að líkaminn beiti einhverskonar „frávísunarmerkjum“ ef óþarflega mikið magn er notað.

Innihaldsefni:
Organic hemp oil extract, organic apricot oil, organic mint and organic chocolate. *Cannabidiol (CBD) is a natural component of the hemp plant.

Endoca hampolía - hrá eða hituð?
Í sinni einföldustu mynd er munurinn á hráolíu Endoca (Raw Hemp oil) og hampolíunni (Hemp oil) sá að í hinni síðarnefndu hefur flestum súrum innihaldsefnum verið breytt með hitunarferli í kolvetni. Hráolían inniheldur nær allt litróf efnasambanda iðnaðarhampsins óbreytt en í hampolíunni er hlutverk CBD kannabínóíðanna yddað enn frekar, m.a. með því að breyta CBDa kannabínóíðasýrunni í hreint CBD.

Það er mjög einstaklingsbundið hvor olían hentar betur hverjum og einum. Endókannabínóíðakerfi líkamans eru ólík og „talsambandið“ á milli CBD kannabínóíðanna, ásamt hinu fjölbreytta föruneyti efnasambanda úr iðnaðarhampinum, er þar af leiðandi einnig mismunandi. Hér skiptir einnig máli hvaða viðfangsefnum CBD olíunum er beint að. Í báðum tilfellum er um heilvirkt CBD að ræða en í hituðu hampolíunni hefur CBD-ið sjálft afdráttarlausara vægi.

 

Um framleiðandann
Stofnandi og stjórnandi Endoca er danski líftæknifræðingurinn og vísindamaðurinn Henry Vincenty. Í námi sínu sannfærðist hann um virkni CBD sem styður endókannabínóíðakerfi líkamans (e. endocannabinoid system (ECS)) og eflir um leið bæði andlega og líkamlega heilsu okkar með margvíslegum hætti. Endoca hefur allt frá fyrsta starfsdegi sínum sett CBD framleiðendum víða um heim metnaðarfull viðmið í gæðakröfum fyrir ræktun iðnaðarhamps, sem í tilfelli Endoca fer öll fram við bestu mögulegu veðurskilyrði í N-Evrópu, og náttúrulegum framleiðsluferlum CBD fæðubótarefna og snyrtivara. Alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið Trustpilot gefur vörum Endoca fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum og byggir þá ágætiseinkunn sína m.a. á umsögnum u.þ.b. fimm þúsund notenda.


Ábending:
Þessi sterkasta útgáfa af Endoca CBD hampolíunni er ætluð þeim sem nýta hana í brýnum viðfangsefnum og byrjendum er ráðlagt að fikra sig af varfærni að hæfilegum dagskammti. Best er að geyma Endoca vörurnar í vari frá sterku sólarljósi eða miklum hita. Við íslenskar aðstæður er óþarft að geyma olíuna í ísskáp. Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota olíuna. Ef upp koma óþægindi í húð eða olían berst í augu skal skola með vatni.

Meira um CBD

CBD hefur verið mikið í umræðu og fréttum víða um heim að undanförnu vegna fjölbreyttra áhrifa sinna til bættrar heilsu. Víðfeðmar undirbúningsrannsóknir gefa sterkar vísbendingar um ýmis jákvæð áhrif af tengingum CBD (cannabinoid) við endókannabínóðakerfið (endocannabinoid system (ECS)) sem verið hefur til staðar í lífríkinu og manninum frá örófi alda. CBD er á meðal innihaldsefna í lyfseðilsskyldum taugalyfjum og í vísindasamfélaginu er almenn viðurkenning á jákvæðum áhrifum CBD á taugakerfið, t.d. kvíða, streitu og svefn ásamt því að virkni á t.d. bólgur og verki er jafnframt þekkt. Unnið er m.a. að fjölmörgum rannsóknum á áhrifum CBD, m.a. á ónæmis- og stoðkerfið. Langt er í frá að allar CBD vörur séu svipaðar. Þar getur m.a. munað um ólíkar ræktunar- og vinnsluaðferðir og sömuleiðis eru alltof mörg dæmi um að raunverulegt magn af CBD sé minna en upp er gefið. Þess vegna þarf að velja framleiðendur af kostgæfni.

Afhendingartími

1-3 virkir dagar