Skip to product information
1 of 2

Dr. Kent Sportgel - Útsala

Verð 4.990 kr
Verð 7.990 kr Útsöluverð 4.990 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.

Stærð : 100ml

Magn CBD : 550mg

Heilvirkt CBD (full spectrum)


Ráðlögð notkun: Þunnt lag 1-2svar á dag á valin svæði, nuddist vel inn í húðina.

 

Dr. Kent CBD sportgelið býr yfir vandaðri samsetningu virkra innihaldsefna og miklu magni (550 mg) af lífrænt ræktuðu CBD. Gelinu er ætlað að vinna á verkjuðum svæðum, þá aðallega í stirðum liðum og stífum vöðvum, bæði fyrir, en þó sérstaklega, eftir mikla áreynslu. Margir upplifa skjóta virkni fyrst sem snögga kælingu í húðinni en síðan strax í kjölfarið hitatilfinningu og verkjastillingu.

Á meðal virkra efna í Dr. Kent sportgelinu auk CBD eru hampolía/þykkni (Cannabis Sativa L), eucalyptusolía, negulnaglailmkjarnaolía og útdráttur úr sterkum pipar. Öll innihaldsefni eru náttúruleg og sportgelið er án parabena og lyktarefna.

Verkferlar og geymsla.

CBD innihaldsefnið í Dr. Kent sportgelinu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að önnur innihaldsefni séu séu unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíðpressun eingöngu án nokkurra aukefna. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals. Sportgelið er fáanlegt í 100 ml. áltúpum og best er að geyma það utan mikillar birtu og hita. Nota skal sportgelið innan sex mánaða eftir opnun. Geymist þar sem börn ná ekki til.

- Athugið að kremið getur litað föt

Framleiðandinn.

Framleiðandi Dr. Kent sportgelsins er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

www.pharma-hemp.com

Innihaldsefni:

AQUA, ISOPROPYL ALCOHOL, CANNABIS SATIVA BIOMASS EXTRACT, MENTHOL, CARBOMER, TRIETHANOLAMINE, EUCALYPTUS GLOBULUS LEAF OIL, EUGENIA CARYOPHYLLUS FLOWER OIL, CAPSICUM FRUTESCENS FRUIT EXTRACT, EUGENOL, D-LIMONENE, ISOEUGENOL

Ábending:

Dr. Kent sportgelið er einungis ætlað til notkunar útvortis á húð. Forðist að gelið komist í snertingu við slímhúð, augu, viðkvæm svæði eða skemmda húð. Gott er að þvo sér vel um hendur eftir að gelið er borið á. Ekki er ráðlegt að nota gelið á börn undir tólf ára aldri.

 

Afhendingartími

1-3 virkir dagar