Skip to product information
1 of 1

Dr. Kent CBD Glúkósamín kæli/hita- og verkjakrem

Verð 7.990 kr
Verð 7.990 kr Útsöluverð 7.990 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Dr. Kent Glucosamine 1100mg

Stærð : 100ml
Magn CBD : 1100 mg
Ráðlögð notkun : Þunnt lag 1-2svar á dag á valin svæði, nuddist vel inn í húðina.

Heilvirkt CBD (full spectrum)
 

 

 

Öflugt verkjakrem sem dregur úr bólgum í liðum. 
Dr. Kent CBD glúkósamínkremið býr yfir fjölbreyttri samsetningu ólíkra innihaldsefna. Í glúkósamínkreminu er mikið magn af lífrænt ræktuðu CBD og meðal annars glúkósamín súlfat, sem hægir á brjóskeyðingu og örvar brjóskmyndun. Glúkósamín gagnast því t.d. vel við slitgigt. Glúkósamínkreminu er einkum ætlað að milda verki í baki, herðum og hálsi, handleggjum og fótum. Margir upplifa skjóta virkni fyrst sem snögga kælingu í húðinni en síðan strax í kjölfarið hitatilfinningu og verkjastillingu.

 

Á meðal annarra virkra efna í Dr. Kent kreminu eru m.a. mentól, kamfóra, metýl salicisýlat, negulnaglailmkjarnaolía, útdráttur úr sterkum pipar, natríum kondróatín súlfat, MSM (lífrænn brennisteinn), sterínsýra o.fl. Allt eru þetta náttúruleg efni og vandlega ígrunduð samsetning þeirra í Dr. Kent kreminu hefur fagnað miklum vinsældum víða um heim. 

 

Ábending : 

Þeim sem taka blóðþynningarlyf er ráðlagt frá því að nota Dr. Kent kremið og ágæt varúðarregla er að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk ef reglubundin notkun þess til langs tíma er fyrirhuguð. Forðist að kremið komist í snertingu við slímhúð, augu, viðkvæm svæði eða skemmda húð. Gott er að þvo sér vel um hendur eftir að kremið er borið á. Ekki er ráðlegt að nota kremið á börn undir tólf ára aldri. 

 

Verkferlar og geymsla. 

CBD innihaldsefnið í Dr. Kent kreminu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að önnur innihaldsefni séu séu unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með súrefnispressun eingöngu án nokkurra aukefna. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals. Kremið er fáanlegt í 100 ml. áltúpum og best er að geyma það utan mikillar birtu og hita.

Geymist þar sem börn ná ekki til. 

 

Framleiðandinn. 

Framleiðandi Dr. Kent kremsins er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

 

Innihaldsefni : 

Aqua, Stearic Acid, Coco-Caprylate/Caprate, Persea Gratissima Oil, Dimethyl Sulfone, Cannabis Sativa Biomass Extract, Caprylic/Capric Triglyceride, Cetearyl Alcohol, Glyceryl Stearate, Squalane, Menthol, Camphor, Methyl Salicylate, Sodium Chondroitin Sulfate, Glucosamine Sulfate, Sorbitan Caprylate, Propanediol, Benzoic Acid, Eugenia Caryophyllus Flower Oil, Sodium Cetearyl Sulfate, Capsicum Frutescens Fruit Extract, Rosmarinus Officinalis Extract, Brassica Campestris Seed Oil, Eugenol, lsoeugenol. 

Afhendingartími

1-3 virkir dagar

Umsagnir viðskiptavina

Engar umsagnir Skildu eftir umsögn